Stelpukonan

Ollý bollý

05.09.2008 10:39:37 / olofmatt

Sunnó skal það vera.

Nú er komið að því, nýtt blogg og það að ég er að fara að flytja í húsið mitt...mitt eigið. Það verður yndisleg tilfinning og skemmtilegt fyrir okkur að takast á við það. Við ætlum að sofa fyrstu nóttina í nótt og allir á heimilinu svaka spenntir...nema kannski Jenný en það á að henda henni í sér herbergi...ef mamman getur!!

Allt gott að frétta og svo sem ekkert nýtt....sennilega allir búnir að frétta þessar stóru fréttir en þær eru fljótar að breiðast út. Annað er ósköp venjulegt.

Stelpurnar fara héðan út á morgnana í skólann og ýmist hjóla eða labba. Júlíu finnst alveg svakalega gaman og fær að fara í vistun 3var í viku og leika við krakkana. ( það eru engar mömmu heima og því engin börn heldur....)  Birgitta er komin í fjórða bekk og stendur sig með prýði, er í kórnum og svo æfir hún á píanó og ætlar að gera sér komur til ömmu sinnar og æfa sig á HVERJUM degi í allan vetur. ( mamma gætiru keypt þverflautu, þá getur Júlía komið líka til þín og æft sig.) Þegar þær verða farnar að spila almenninlega skulum við fjárfesta í hljóðfærum handa þeim og þá geta þær spilað heima;)

Við erum annars bara í miðjum klíðum,erum bara að flytja dótið svona hægt og rólega og reyna að rústa ekki öllu þarna hinumegin við ána. Læt heyra í mér þegar eitthvað fréttnæmt gerist og læt ykkur vita ef það koma nýjar myndir, annars eru myndirnar hér undir þessum link. http://picasaweb.google.com/olofmatt

Túrílú, stelpukonan

» 9 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 21:17:54 / olofmatt

Nýtt hús....

Við erum búin að festa kaup á rosa fínu húsi....flytjum 15. ágúst og erum himinlifandi að hafa náð að finna hús hérna í sveitinni;) Húsið er 153fm með bílskúr og 4 svefnherbergi...agalega smart;)
Allt gott annars, Birgitta var að klára skólann á föstudaginn og kom heim með flottar umsagnir, Júlía útskrifaðist úr leikskólanum einnig á föstudaginn en verður fram að sex ára afmælinu og sumarlokun. Hún fékk fallega birkihríslu sem verður að sjálfsögðu sett í nýja fallega garðinn;) Jenný er bara að verða 10 mánaða og er að læra að sofna sjálf....hún er nú ansi þver og reynir hvað hún getur til að einhver komi og taki hana og knúsi í svefn....erfitt að vera lítill.
Af okkur hjónum er bara gott að frétta....ég er enn heima og ætla að vera það allavega framyfir áramót....þetta með dagmömmuna...ég ákveð það kannski bara í haust. Árni er svo bara á gamla staðnum og nóg að gera þar....!

Annars bara vildi ég láta vita af þessu með húsið.
Túrílú
Stelpukonan

» 8 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 23:30:47 / olofmatt

Ekkert hús....

Við erum hætt við að kaupa húsið.

Það er næstum alveg kominn maí, snjór á rúðum bílana og kuldinn minntu mig sérstaklega á það í morgun...alveg yndislegt hvað snjórinn getur verið hvítur. Vona eftir góðu sumri, bíð spennt hvenær það byrjar.

Allt gott, allir frískir.

Birgitta er að verða búin í skólanum og mun þá fara í fjórða bekk næsta haust. Mér finnst samt eins og fyrsti skóladagurinn hennar hafi verið í gær. Hún ætlar að skella sér á sumarbúðir í sumar með vinkonu sinni og hlakkar mikið til þess. Hún er sko orðin svoooo stór ( finnst henni ) þannig að hún getur nú alveg gert ótrúlega margt, ein. Til dæmis að fara á sumarbúðir, ein, passað Jenný lengi, ein, farið í sund með vinkonunum, ein og fullt af fleiri hlutum og auðvitað allt ein.   Einhvernvegin finnst mér ég bara farin að vera svona óþarfi......! Mömmur upplifa víst oft svona höfnun....kannski bara misjafnt hvenær þessi höfnun byrjar og hvenær hún hættir.

Júlía er ekki búin að hafna mér, ein sem kemur oft uppí á nóttunni, er mesta letidýr í heimi þegar kemur að því að ganga frá eftir sjálfa sig, elskar að skrifa og lita þessa dagana, kann að hjóla og finnst það alveg frábært, á fullt af vinkonum, er þrjósk eins og fleiri í famelýjunni og er alveg að fara í skóla...bara eftir 4 mánuði. Vá, hvað það er stutt síðan hún fæddist og Árni lét tengdamóður sína vita að hún væri fædd en gleymdi að segja henni hvað hún héti....ekki svo naugið.

Jenný Lilja er ótrúlega dugleg og góð og við verðum seint þreytt á að hampa henni fyrir góðan gír. Hún er farin að sofna sjálf á kvöldin og er farin að sýna meiri vilja við át á hinum ýmsustu matartegundum. Hún er nú farin að skríða og kemst ótrúlega hratt og örugglega yfir. Hún er meira að segja farin að gera systrum sínum gramt í geði þegar hún nær að skemma legó byggingar þeirra eða annað slíkt. En það verður enginn reiður, bara sagt með smá áherslu á nafnið hennar „ JENNÝ, þetta má ekki“ og þar með er það búið. Jenný hefur fengið eina tönn í viðbót síðan síðast og er því með 3 tönnslur núna og glittir í þá fjórðu. Hún er enn í sjúkraþjálfuninni og gengur rosa vel og verður útskrifuð á sumarmánuðum...!

Árni er samur við sig, vinnur allt of mikið og unir sér varla þegar hann er í fríi. Hann er að fara í svona laser aðgerð á öðru auganu núna í byrjun maí og vonar að þá geti hann farið að sjá allt í þrívídd. Svo fer hann í uppskurð á ökkla núna í sumar og á hné í haust þannig að ég verð orðin þokkalega leið á að hjúkra honum...hehe!  Vonum allavega að hann geti eitthvað hreyft sig eftir þessi inngrip.

Ólöf er bara hress, fyrir utan það að vera hætt við að kaupa húsið og vita ekkert hvar fjölskyldan verður að ári og allt það, þá er hún bara hress....hún ætlar bara að vera ÞOLINMÓÐ og bíða rólega og sjá hvað verður!

Við erum á leiðinni suður núna um helgina, Birgitta verður þó heima hjá Sunnu sys en við hin ætlum að bruna suður. Brynja systir Árna á afmæli og verður þrítug og við ætlum að mæta þar fersk  ( allavega ég ) og auk þess verður Apríl 2ja ára og við getum slegið tvær flugur í einu...og hitt allt fólkið hans Árna!

Svo er bara að taka á því núna og skella sér í hlaupagallann og fara að hlaupa....!! Bið að heilsa ykkur í bili,

Stelpukonan kveður

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 19:40:56 / olofmatt

Hux Hux

Jæja, sest við skriftir að nýju.
 
Allt gott, nema hagkerfið okkar:^) !! Hvernig á maður eiginlega að fara að því að versla sér hús þegar allt er svona á haus í þessu landi. Hvernig fer fólk að þessu??? Mér er þetta mál svo hugleikið því ég fer sennilega að demba mér í þennan pakka og ég sé fyrir mér að við hjónin verðum bara í því að vinna og vinna og börnin þurfi að sjá um sig að miklu leiti sjálf. Ég er bara ekki tilbúin í það að vera svona lítið heima og geta ekki verið til staðar þegar þau koma heim úr leik og grunnskólanum, þetta er svo stuttur tími sem þau þurfa virkilega á manni að halda. Ég veit auðvitað að margir hafa ekkert val en það er bara vegna þess að kerfið hér á Íslandi býður ekki upp á neitt val, ég meina, af hverju er mér ekki borgað fyrir að vera heimavinnandi?? Margir myndu vilja vera lengur heima með litlu börnin sín. Birgittu finnst það mjög skrítið að ég fái ekki pening fyrir að vera heima því ég sé alltaf að vinna. Æi, ég er eitthvað svo dán :cry:yfir því að geta kannski  eignast þak yfir höfuðið en geta ekki leyft mér að eyða tíma með famelýjunni því það þurfa allir að vinna:$ til að komast af og eiga fyrir lánunum um hver mánaðarmót, spennandi ekki satt??:(

Jæja, nóg um leiðindi.
Allt gott af okkur eftir að hafa öll legið í veikindum um páskana, ég fékk lungnbólgu en þau hin með hita og hósta. Nú eru allir orðnir brattir og dagsins annir teknar við.

Jenný stækkar og stækkar og nálgast áttunda mánuðinn eins og óð fluga. Hún er nú farin að sitja og setja sig í skriðstellingar og sennilega líður ekki á löngu þar til hún fer að færa sig verulega úr stað. Hún er með tvær tennur, kann að klappa og sýna hvað hún er stór og elskar systur sínar sem eru alveg einstaklega góðar við hana. 

Birgitta stendur sig vel í því sem hún tekur sér fyrir hendur hvort sem það er skólinn, píanóið eða skíðin. Hún er enn að spá í það hvort hún sé orðin nógu góð til að taka þátt í Andrésar andar leikunum en mamman reynir eftir fremsta megni að kenna henni þenna ljúfa UNÞ anda. Bara vera með og hafa gaman af;) 

Júlía er voða ánægð í leikskólanum og telur niður í sex ára afmælið. Hún er nú farin að kveða að og æfir sig í því að skrifa og gengur það ágætlega. Það gætir þó einhverrar óþolinmæði af og til en hvaðan hún kemur er ekki vitað8) Hún er voða spennt að takast á við skólann í haust og fer reglulega í heimsókn í skólann ásamt verðandi bekkjarfélögum.

Árni er bara samur við sig, harður í vinnunni en slakur í boltanum, alltaf eitthvað að honum í skrokknum og hann farin að láta á sjá....:haha:

Tjellingin á heimilinu er bara að ná sér eftir heiftarlega flensu en flensan er að ég held oftar en ekki lengur að fara úr konum...þær þurfa alltaf að sjá um heimilið þó þær séu veikar...það þurfa allir straujuð hrein föt og klósettið verður líka skítugt þegar .ær eru veikar:d nei nei bara grín. Annars er ég að spá í að gerast dagmamma þegar og ef við flytjum einhverntíma inn í eitthvað hús, til þess eins að geta notið þess að vera heima meðan Jenný er svona lítil, er strax búin að fá pöntun fyrir eitt....!!

Kveðja, Stelpukonan

» 10 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:54:38 / olofmatt

Desember

Vá hvað það er stutt síðan....ég meina það er svo stutt síðan ég skrifaði fyrir jólin í fyrra...þá ólétt, með ógleði og skemmtilegheit...núna ári síðar hefur Jenný bæst í hópin, svo fullkomin og flott og mér finnst þetta allt hafa bara verið í gær.

Ég man þegar ég var lítil og var að bíða eftir jólunum...og tíminn stóð bara næstum kyrr og ég spurði mömmu hvort hún væri ekki að bíða og hún sagðist eiginlega ekkert þurfa að bíða því tíminn flygi alveg áfram þegar maður væri fullorðinn!! Og það er akkúrat það sem er að gerast núna...tíminn flýgur áfram og þá hlýt ég eiginlega að vera orðin fullorðin;)

Allir annars ferskir hér. Árni er að vinna á fullu auk þess sem hann er á fullu að læra undir próf...sem þýðir að við sjáum hann voða lítið en vonumst til að eiga smá frí með honum um jólin;) Júlía er í skólahóp í leikskólanum og sá hópur fær að heimsækja skólann og vinna með þeim sem nú eru í fyrsta bekk. Hún fór í morgun í sína fyrstu ferð og var svo rosalega spennt...faðmaði pabba sinn í morgun þegar hún vakti hann og sagði " pabbi við skulum núna vera rosalega fljót á fætur svo ég mæti ekki seint, ég er nefninlega að fara í skólann" Oh ,hún var svo stór allt í einu. Birgitta fékk vinkonu sína heim með sér í dag og þær spiluðu við mig og fóru svo út að renna en hér er allt á kafi í snjó, krökkunum til mikillar gleði. Annars er hún orðin ótrúlega fullorðin á margan hátt en samt svo lítil:)

Mamma sendi mér póst um daginn sem Margrét Pála sendi fyrir 12 árum síðan en á svo sannarlega enn við en það er bara þetta með jólin og óhófið. Ég er svo sammála henni að mig langar að öskra það um allan heim þetta sem hún skrifar. En maður er svo innvolvaður í þetta og þarf að taka sig taki til að ná sér út úr þessu;) Magga Pála rúlar...mín fyrirmynd af HUGSUÐUM.

Ég og Jenný erum bara brattar, hún bara breytist með hverjum deginum og er alveg ómótstæðileg. Hún sefur allar nætur og ótrúlega meðfærileg...sitt sýnist hverjum og hverjum sýnist sinn fugl fagur...en þetta eru bara staðhæfingar;) Hún er bara ÆÐI og okkur finnst það öllum. Hún byrjaði núna á föstudaginn hjá sjúkraþjálfa því okkur finnst hún allt of hægri sinnuð og erum að reyna að koma henni yfir á vinsti vænginn.    Ég, hm, ekkert nýtt;) Elska það bara að vera ekki í skóla og nýt þess að geta dúllað með stelpunum svona fyrir jólin.

 

Jæja, bið að heilsa í biði og vil endilega minna ykkur á að sælla er að gefa en þiggja og endilega munið eftir því þegar þið spyrjið börnin um hvað þau gáfu í jólagjafir en ekki bara hvað þau fengu;) Gleðileg jól og nýtt ár...og geriði það að njóta þessa mánaðar og láta ekki stress og annað skemma fyrir;)

Stelpukonan kveður og þakkar fyrir árið;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 15:00:37 / olofmatt

Gott líf

Ég er svo heppin, ég á góða fjölskyldu, yndisleg börn og besta manninn, ég á góða heilsu og yndislega vini. Hvað vill maður meira??? Ég meina, ég þarf ekki allt það flotta og besta...ég á svo margt sem aðrir myndu vilja eiga en geta engan vegið keypt. Mér finnst ég í alvöru ótrúlega heppin og ég ætla héðan í frá að hugsa meira um það, ég meina bara vakna á daginn og reyna að hugsa ekki of mikið um það sem ég ekki á eða það sem ég myndi vilja eiga heldur bara lifa lífinu og njóta.

Þetta var eiginlega allt sem ég vildi segja...allt gott hér og dömurnar dafna og við hjónakornin bara alsæl. Að öllum líkindum flytjum við í nýtt hús eftir sirka ár og það verður gaman að koma sér upp heimili þar. Það verður líka hérna í hverfinu og við bara spennt að fara í "stóra pakkann".

Melda mig síðar,

stelpukonan


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 21:35:34 / olofmatt

Allt í sómanum

Já hér er allt í sómanum og gengur bara vel hjá okkur mæðgum. Við Jenný dúllum okkur hér heima á meðan annað heimilisfólk fer í sína skóla. Tinna frænkan mín er mér ómetanleg hjálp en hún kemur Júlíu í leikskólann og nær í hana og er líka að passa Másý!! Tinna mín þú ert best!!!!       Mér finnst alveg geggjað að vera ekki að fara í skóla núna og hlakka sérstaklega til í desember þegar jólin fara að nálgast en þá get ég bara dundað mér í bakstri og föndri með stelpunum en það hef ég ekki gert í 4 ár. Mér finnst líka frábært að vera ekki að fara að vinna og nýt þess í botn að fá að vera heimavinnandi húsmóðir. Spurning hversu lengi ég verð en eitt veit ég að ég er ekki að fara að vinna vaktavinnu á sjúkrahúsinu á meðan stelpurnar eru svona litlar..!! Það veit ég!! Spurning um að gerast bara dagmamma:D fyrst maður er hvort sem er heima.

Við vitum enn ekkert um hvar við verðum eftir ár þegar mamma kemur aftur en það kemur nú líklega í ljós á þessu ári...spennandi það!! Neita því ekki að það verður allavega gott að komast í sitt eigið og taka upp dótið sitt aftur eftir þrjú ár!!

Helstu fréttir eru að Elva mín er farin af landi brott og það næstu 7 árin!!!Hvað á ég að gera næstu 7 árin??? Já mér er spurn. Efst á forgangslistanum er samt að kaupa sér web cam þannig að við getum aðeins hist á netinu!!  Ég ætla að heimsækja hana í nóvember og taka stelpurnar með mér og versla af mér rassgatið....( maður labbar svo mikið í útlöndum ) . Svo ætlar hún að koma um páskana þannig að við lifum þetta ár og hálft næsta allavega af!!  

Vildi annars bara láta vita af okkur, hef engar fréttir aðrar en þessar og bið bara að heilsa í bili...takk fyrir kveðjurnar;) kveðja Stelpukonan;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 11:41:10 / olofmatt

Jenný Lilja

Já það er sem sagt komið barn og hún mun fá nafnið Jenný Lilja. Hún var rúmar 19 merkur og 56 sm ...ekkert smá stór og flott. Hún er góð blanda af eldri systrum sínum og þær eru að vonum mjög ánægðar með hana. Hún er nú orðin 13 daga gömul en sú stutta fæddist á afmælisdegi móður ömmu sinnar þann 07.08.07 sem er sko flottur dagur;) Hún er voða vær og góð og ekkert vesen á henni og ég er bara alveg búin að ná mér eftir allt saman8) 

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 18:26:58 / olofmatt

ekkert barn komið

Hæ hæ þið öll sem bíðið...hehe!! Ekkert barn komið enn enda er ég ekkert komin á tíma. Á að eiga á föstudaginn 27.07 en reikna nú með því að barnið komi ekki fyrr en sirka 2 ágúst samkvæmt mínum útreikningum:lol: Mér líður alveg ROSALEGA VEL og hef enga verki og ekki neitt....sef allar nætur og þarf  ekki einu sinni á wc á nóttunni. Það er bókstaflega ekkert að mér og ég bara sæl með það. Annars allt gott af öllum, maður þarf ekkert að hafa fyrir stelpunum  en þær fara út á morgnana og droppa af og til inn til að borða en annars leika þær bara með hinum krökkunum úti. Við förum samt reglulega í sund og finnst alveg frábært að hafa svona fína laug í nágrenninu.

Árni er bara brattur og nú styttist í að hann setjist aftur á skólabekk, það örlar nú fyrir smá kvíða en ég hef fulla trú á kallinum....enda minn kall.

Skrifa fljótt aftur og ég mun láta vita þegar lillan mætir á svæðið:D 


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 22:16:21 / olofmatt

styttist óðum

Já það styttist, það fer ekki á milli mála að tíminn líður og það hratt. Ég er svo langt frá því að telja niður dagana ennþá því það er sko nóg að gera. Stelpurnar báðar komnar í frí og nóg að gera í því að vera mamma og húsmóðir, eiginkona og vinkona og allt hitt. Ég er alveg rosa hress og hef ekki undan neinu að kvarta. Stundum finnst mér ég pínu öðruvísi því ég finn ekki fyrir neinu...sef vel, þarf aldrei að pissa á nóttunni, engan bjúg sem truflar, enga fyrirvaraverki eða samdrætti....bara ekki neitt...!! Ég veit að auðvita á ég að vera glöð með þetta en þið vitið...það eru bara flestar með eitthvað og maður vill bara stundum fitta inní.

Árni er að fara í nám sem hefst núna í ágúst og tekur um það bil ár. Hann verður í burtu alla virka daga í ágúst og svo 2 daga í viku í allan vetur. Þetta mun sennilega minna mann á gömlu tímana þegar hann var að vinna á Reyðarfirði. En þetta reddast allt saman eins og það hefur alltaf gert og vonandi verður hann ánægður með þetta nám. En hann þarf svo að skrifa ritgerðina sína næsta sumar og þá verður hann voða merkilegur hehehe.

Ég og Elva vinkona skruppum í útilegu núna í júní og fórum á Apavatn. Við vorum með öll börnin og alveg einstaklega heppnar með veður. Við vorum í tjaldvagninum okkar í sex daga og fórum svo til Reykjavíkur og vorum þar í aðra sex daga og náðum að skoða ýmislegt þar líka. Ferð sem við þurfum endilega að endurtaka, helst að gera þetta að árlegri rútinu...kannski alltaf um versló og leyfa þá körlunum að vera memm.

Jæja, vildi bara láta vita af mér, er að fara á ættarmót í Lundi á föstudaginn og við ætlum bara að vera flott á því og vera í herbergi...ekki það að ég hefði alveg treyst mér að vera í tjaldvagninum....ekkert að því enda frábær vagn!! Í vikunni verður svo litla trítlan mín stór stelpa og ætlar að verða fimm ára og hlakka mikið til. Við erum búin að kaupa voða flottan vagn handa henni svo hún geti keyrt með mér og litla barninu. Leikirnir hjá þeim systrum hafa nebbla breyst mikið núna undanfarið en nú er aðallega leikið með dúkkur og dúkkudót, kerrur og í mömmó. Þær verða flottar ráðskonur hjá mér þegar þar að kemur. Bis spaeter 


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 21:46:43 / olofmatt

Til hamingju Ísland

Jæja, nú er mín bara orðin hjúkka....allavega útskrifuð úr háskólanum en á reyndar eftir að sækja um réttindin hjá ráðuneytinu. Annars liggur mér nú ekkert mikið á þar sem ég á líklega ekki eftir að starfa við þetta fyrr en í fyrsta lagi eftir rúmlega ár. Oh ég hlakka svo til að geta verið heimavinnandi húsmóðir og njóta þess að vera með börnunum mínum.  Útskriftin var bara rosa flott og fullt af góðu fólki sem gladdi mig með góðum gjöfum og nærveru sinni. Það var alveg geggjað veður sem hafði að sjálfsögðu mjög mikið að segja.

 

Bumbukrílið stækkar vel og bumban orðin misstór...sumir segja að hún sé mjög stór aðrir segja að ég sé “nett” og enn aðrir t.d. ljósmóðirin segja að hún sé alveg eftir bókinni...ég er því ekkert mjög stressuð og á ekki von á 20 marka barni;). Annars get ég ekkert kvartað því mér líður alveg rosa vel og bjúgurinn lætur ekkert mikið á sér bera ( sem betur fer ) en ég reyni að passa mig í saltinu og sykrinum. Grindarverkir og bakverkir og aðrir verkir njóta sín betur hjá einhverjum öðrum því ég finn ekkert svoleiðis...heppin ég!!

 Stelpurnar eru bara voða spenntar en ég held þær átti sig ekkert alveg á þessu samt sem áður. Nú er Júlía mín að verða fimm ára og þó að það sé nærri mánuður í afmælið hennar ætlum við að halda smá veislu fyrir leikskólakrakkana á morgunn. Hún er voða spennt og búin að plana heilmargt með mömmu sinni.

 

Svo á bara að skella sér suður á þriðjudaginn og fara í útilegu í allavega viku með Elvu vinkonu og börnum okkar. Það verður örugglega skemmtileg ferð;) Svo endum við ferðalagið með því að fara í útskriftar og kveðjuveislu til Elvu og Gumma þann 30. júní.

Annars vildi ég bara svona láta vita af mér...fyrir þessa sem lesa.

Túrílú, Stelpukonan sem er hjúkrunarfræðingur:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 19:44:24 / olofmatt

Bara útskriftin eftir

Nú er þessu lokið....fyrsta háskólagráðan komin í vasann....eða svona allt að því ,á reyndar eftir að fá út úr lokaverkefninu en reikna nú ekki með því að falla í því...ótrúlega spennandi verkefni sem allir ættu að lesa...!! :)

Ég er sem sé bara í fríi hér heima og hef það fínt, nóg að gera við að halda húsi, hundi og börnum hreinum og bara vera heimavinnandi húsmóðir....furðulegt að heimavinnandi mæður séu ekki með himinhá laun, þetta er sko alvöru vinna. 

 

Í dag var krummadagurinn í leikskólanum hjá Júlíu en þetta er einhverskonar vorhátíð og krakkarnir sem hætta fá útskriftargjafir og svo gerir hver deild eitthvað skemmtilegt. Grill, svali og ís tilheyrir svo eftir allt saman. Í dag var dóttir mín ásamt sinni deild með voða flott atriði en þau tóku júróvisjón lagið hans Eiríks. Var mjög flott en það heyrðist nú samt mest í henni Júlíu þar sem hún var með ekta míkrafón en allir hinir bara plat. Það örlaði fyrir smá roða í kinnum móður hennar þegar hún tók viðlagið í laginu en það söng mín sko bara hátt og snjallt:D!! Annars var veðrið alveg ömurlegt og hálf fúlt að fá ekki sólina aðeins í dag en ég held nú að allir hafi skemmt sér þrátt fyrir það.;)

 

Nú eru gellurnar  ( bekkjarsystur mínar ) í útskriftarferð á Thailandi og skemmta sér eflaust konunglega. Vona samt að það sé geggjað mikill raki þar og ógeðslega heitt....hehehe nei nei ljótt að segja svona. Ég fer bara í ljós á meðan þær eru úti svo ég verði ekki eins og næpa á útskriftinni. :$

 

Talandi um útskriftina þá er hún þann 9.júní og svo verður bara partý hjá mér á eftir en við Júlía frænka mín ætlum að halda smá veislu saman en hún er að útskrifast sem kennari. Ef þú hefur ekki fengið boðskort en langar að mæta þá endilega láttu mig vita...bara svo þú fáir örugglega eitthvað að borða. :haha:

 

Óléttan gengur bara fínt og daman dafnar eflaust vel þar sem bumban stækkar óðum. Eitthvað er ég nú farin að gera mér grein fyrir að eftir nokkrar vikur verð ég með þrjú börn og eitt sem axjúllý þarf að hugsa eitthvað um. Ég meina þetta ekki slæmt heldur eru stóru stelpurnar mínar orðnar svo sjálfbjarga að sjálfri mér finnst nú stundum nóg. Þær verða eflaust voða duglegar að hjálpa mér með lilluna. En það er eitt sem við getum með engu móti ákveðið en það er nafnið á dömuna, hvað eigum við að láta hana heita??? Ef þið eruð með einhver flott nöfn endilega látið mig vita...!! ;)

 

Síðustu fréttirnar í dag eru sorgarfréttir::::::  Elva og Gummi eru að flytja til Svíþjóðar í haust og skilja mig hér eftir á klakanum. :cry:Við sem ætluðum að vera svo duglegar að skrappa og svoleiðis í vetur. Ég veit ekki hvað verður um mig þegar Elvan mín fer...!:cry:! Fyrir utan það þá finnst allri fjölskyldunni leiðinlegt að þau séu að fara. Birgittu leist ekkert á þetta og spurði hvenær við færum líka!! Já, það er spurning hvort eða hvenær við förum en ég er allavega á leiðinni út í okt-nóv og ætla að vera aðeins hjá henni þar með litla barnið:$.

 

Jæja, bið að heilsa ykkur í bili...stór helgi framundan, 4 fermingar og fullt af góðu fólki að koma hingað norður;) Kveðja Stelpukonan:haha:

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 18:55:13 / olofmatt

Háskólanámið á enda??

Jæja, það líður senn að lokum...allavea í bili.......:lol:

Ótrúlegt en satt þá er ég þessi þrjátíu og eins árs gamla, gifta kelling og bráðum þriggja barna móðir orðin hjúkrunarfræðingur. Ég man alltaf þegar ég byrjaði og hugsaði til þess með Júlíu eins árs og Birgittu 3ja ára að þegar ég yrði loksins búin þá yrðu þær að verða fimm og átta ára....nú er það raunin og þetta hefur liðið alveg rosalega hratt. Ágætis tími þegar ég hugsa til baka8).

Lokaverkefnið er nú að mestu búið, við eigum eftir að fá það frá prófarkalesaranum og laga það sem hann leggur til og svo að henda því í prentun og skila því á föstudaginn. Viku seinna eigum við að halda kynningu á verkinu fyrir fullu húsi en það eigum við nú eftir að klára að gera. Þegar það er búið er bara að bíða eftir útskriftinni sjálfri sem er þann 9.júní en þá verður partý í sveitinni.;):haha:

Annars hefur vinnan við lokaverkefnið gengið framar vonum og held að allar séum við bara sáttar. Þetta var sko ekki jafnslæmt og við héldum. Við teljum þó að vegna mikils skipulags og skiptingu kafla þá hafi þetta orðið töluvert einfaldara en hjá mörgum öðrum.

 

Annars stækkar kúlan óðum og daman virðist dafna vel. Stelpurnar eru mjög spenntar að fá þetta litla barn og finnst þær hafa beðið ótrúlega lengi. Þeim finnst mamma þeirra líka hafa bætt ansi mikið á sig...en samt sko bara bumbu. Daman er svo væntanleg 27.júlí 2007 ...flott kennitala það 27.07.07.:P:)

 

Ég ætla ekkert að skrifa meira í bili því ég veit að blogg þurfa ekki að vera löng...ég vildi bara svona láta vita af mér og mínum.:)

Kveðja Stelpukonan

 

Ef þið lumið á góðum gullkornum, endilega látið mig vita, okkur vantar eitthvað gott í verkið;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 23:18:45 / olofmatt

Minningar og auglýsing

Þegar ég er spurð hvort ég bloggi þá segi ég nei, einfaldlega vegna þess að ég legg þann skilning í blogg að þá skrifi maður oftar en tvisvar í mánuði á síðuna sína og ég er ekki að gera það. Þannig að ég skrökva af skömm:S ( það má víst).

Annars allt gott og allir ferskir. Bumban er að koma í ljós og daman litla bara spræk. Ég er nú enn með þessa blessuðu morgunógleði sem reyndar dreyfist vel yfir dagana...bíð spennt þegar hún verður horfin á braut, flogin í vin/veg.  Stelpurnar eru mjög spenntar að fá litla systur í sumar þó svo að þeim finnist þetta hálf óraunverulegt og eigi erfitt með að bíða. Biðin styttist nú alltaf og nú aðeins 17 vikur í þriðja hnossið.:haha:

Það er allt á fullu í skólanum þessa dagana enda eina vikan sem við sækjum skólann þessa önnina. Allir kennarar keppast við að hafa sem flest verkefni og sem mest að gera til þess að við getum verið vissar um að það sé erfitt að vera í háskóla...þetta er bara eins og full vinna!!!Lokaverkefnið er nú það stærsta og er komið vel á veg og miklar líkur á að það náist að klára það fyrir skiladaginn 11.maí. Mikið verður það ljúft að geta loksins látið skrá sig í símaskrána Ólöf "hjúkrunarfræðingur" þrátt fyrir að það fræðiheiti segi meira en maður getur lofað að vera. Þetta mun samt að öllum líkindum verða að staðreynd þann 9 júní næst komandi og þá verður nú gaman að lifa!! Já maður hefur eiginlega beðið eftir þessum degi í dálítinn tíma og ég viðurkenni að það verður ljúft að þurfa ekki að lesa undir próf fyrir næstu jól heldur dunda sér með öllum dömunum við jólabakstur, þrif og gleði....loksins loksins þessi jólaandi sem ég hef beðið eftir!! ;)

En nóg um jólin....sumarið er nú farið að reyna að gægjast hér inn á milli fjalladala hér í Eyjafjarðarsveit og einhvern veginn er það alltaf svo að á þessum tíma leitar hugurinn heim, heim í fallegu sveitina mína þar sem ég sleit öllum mínum barnaskóm, þar sem rætur mínar liggja og næstum allar mínar bernsku minningar, heim í Ás. Já, þetta minnir mig alltaf á það þegar ég vakti yfir ánum og gekk á milli fjárhúsa með Smala mínum og naut þess að lifa uppáhalds tímann minn í sveitinni....Sauðburðinn. Ég vildi óska þess að ég hefði einhverja svona sveit þar sem ég gæti farið með stelpurnar mínar og leyft þeim að upplifa þessa yndislegu stundir sem hægt er að eiga í sveitinni. Fyrir mér er þetta svooo dýrmætt og gott til þess að hugsa og ég þakka oft fyrir það eitt að hafa fengið að alast upp á stað sem er fallegri en paradís.

Jæja aftur í raunveruleikann og Eyjafjörðinn. Við verðum hér eitthvað áfram þar sem líkindareikningur Árna gekk ekki upp. Hann fékk ekki nám við sitt hæfi og þar af leiðandi erum við í bili, hætt við að fara út. Við verðum að sjá og bíða með það allavega í ár í viðbót. Þannig að þið þurfið ekkert að fara í panic því þið getið bara áfram sent pakka og jólakort í Valló.

Hef áttað mig á því að blogg þurfa ekkert endilega að vera löng, skemmtileg, vel orðuð, vel skrifuð né efnismikil....höfuðmálið er bara að melda sig....!! Kveð ykkur að sinni, Stelpukonan

p.s ef þið viljið fá vana konu í sauðburðinn ( næstum komin að burði sjálf samt og með tvo krakka sem gera sjálfsagt lítið gagn) þá endilega látið mig vita, ég er laus alveg eftir 18. maí .:haha:..


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 22:48:59 / olofmatt

Janúar2007

Mætt aftur..nokkrum kílóum léttari...heheJ Gleðilegt ár og allt það og jól og svoleiðis.

 

 



Frétt dagsins í gær: Soffía mín var að eignast litla stelpu í gær og ég sendi henni allar okkar bestu óskir með litlu prinsessuna sem hefur fengið nafnið Ingunn Sara sem er eftir fallegu ömmunni hennar. Gaman að þessu. Arnar Snær L var samt hálf fúll að það skyldi nú ekki koma strákur....nú er hann einn með 4 stelpum....en við reynum að bæta úr því síðarJ Kannski hann verði einhvern tíma ánægður með þettaJ

 

 



Engin ákvörðun í sjálfu sér með útlönd nema hvað Árni er alltaf að leika sér að líkum og það eru víst heilmiklar líkur á að við förum til Lundar í haust......en það verður auðvitað allt að ganga upp og það er enn bið með að við vitum það.  

 

 



Ég er nú komin aftur norður og er að verða búin í verknáminu á svæfingardeild og þar með verður verknáminu í þessu námi formlega lokið.  Það verður líklega ekkert formlegt en allavega búið. Var á slysadeild vikunni áður og þar fannst mér mjög gaman og nú er ég jafnvel að hugsa um að fara í svona slysa og bráðahjúkrun....ARRRGGG ég get ekki ákveðið mig og ég þoli það ekki....mig langar bara allt of mikið í allt of margt!!!

 

 



 Ég skrapp suður og var þar í 2 vikur og var á vökudeild á barnaspítalanum. Það var alveg rosalega gaman að vera milli þess sem það var erfitt að horfa upp á þessu litlu kríli standa í þessum veikindum sínum og geta ekkert gert.  Ég vildi alveg óska þess að það væri svona barnaspítali hérna fyrir norðan en ég held ég myndi plumma mig vel þar....!!

Allavega, ég sveik öll loforð fyrir sunnan og náði auðvitað ekki að heimsækja nærri því alla enda stór fjölskylda sem ég á þarna fyrir sunnan. Þið eruð alltaf velkomin til mín;)  En þessa sem ég hitti var gaman að hitta og ekki orð um það meir.

 

 



Stelpurnar eru bara samar við sig, stækka og þroskast örlítið með hverjum deginum og finnst þær stundum vera eldri en þær eru....mér finnst það allavega eða hvenær byrjar unglingaveikin??? Nei, nei þær eru fínar og ég hlakka til að vera í svona hálfgerðu fríi ( heimildafríi) núna í febrúar en þá get ég leyft þeim að koma fyrr heim og gert eitthvað sniðugt með þeim....alltaf með samviskubit. En þær eru samt það allra besta sem ég á og maður vill alltaf standa sig svo vel í að gera þeim allt til hæfis og þegar það tekst ekki....þá er maður með bullandi bit.

 

 



Árni var að ljúka við próf í löggildingu mannvirkjahönnuða og stóð sig þar með stakri prýði og má nú skrifa upp á teikningar og vera byggingarstjóri...jibbý!!  Örugglega frábært þegar hann fer að læra um afleiður og hagnýta stærðfræði eða hvað það er sem hann er að spá í að fara í ......já við erum ekkert með rosalega lík áhugamálJ

 

 



Nú líður senn að lokaverkefnistörn en við ætlum að vera extra duglegar í febrúar, mars og apríl ( enda enginn annar tími) og vera búnar þegar við Árni skreppum í rómó ferð til Rómar í enda apríl. Við eigum alveg eftir að rúlla þessu upp.....

 

 



Hvar getur maður keypt svona fitness hlaupahjól....ég er sko ein af þessum bissý konum og kemst ekkert mikið í ræktina en langar að fá mér kannski eitt svona krúttí púttý hjól fyrir framan sjónvarpið og aðeins að ná upp smá þoli....hvernig líst ykkur á það?? Veit einhver um góða búð og góð verð???

 

 



Æi þetta er nú alveg orðið nógu langt núna...ekkert skemmtilegt og eintómt rugl, reyni að melda mig fljótlega aftur ef ég hef eitthvað sniðugt að segja....annars bara túrí lú

 

Sunna mín, farðu nú að melda þig elskan, sakna þín rosa mikið og nú styttist aldeilis í að þú komir,.....það er sko á þessu ári:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Myndir